Stuðningsmannaveggur KA og KA/Þórs

Handbolti
Stuðningsmannaveggur KA og KA/Þórs
Þú vilt ekki missa af þessu tækifæri!

Kæri stuðningsmaður KA og KA/Þór!

Vilt þú komast á vegginn í KA-heimilinu? Heimavelli KA og KA/Þór í Olís-deildinni. Nú er það auðveldara en nokkru sinni fyrr. Til þess að gera góðan stuðning enn betri ætla KA og KA/Þór að vera með stuðningsmannavegg í KA-heimilinu í vetur.

Fyrir aðeins 10.000 kr getur þú fengið nafnið þitt á vegginn og fest þig í sessi sem dyggan stuðningsmann KA og KA/Þór. Hver einasta króna rennur beint í starf liðanna okkar sem standa í ströngu um þessar mundir í undirbúningi sínum fyrir Olísdeildirnar. KA ætlar sér stóra hluti í vetur með töluvert breytt lið frá því í fyrra. KA/Þór hefur hinsvegar TITLA að verja og hefst sú barátta strax 5. september með leik Meistara Meistaranna.

Vertu dyggur stuðningsmaður og skráðu nafn þitt á veggi KA-heimilisins fyrir aðeins 10.000 kr.

Það má vera fullt nafn, gælunafn – það má kaupa nafn fyrir aðra (ömmur, afa, frænkur eða frændur).
Fyrirtæki geta einnig fengið tilboð að vera á veggnum.

Til að vera með á veggnum er best að hafa samband við siguroli@ka.is fyrir 2. september næstkomandi.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is