Fríar tækniæfingar hjá handboltanum

Handbolti
Fríar tækniæfingar hjá handboltanum
Frábært framtak hjá handboltanum

Rétt eins og undanfarin ár verður unglingaráð KA í handbolta með sérhæfðar tækniæfingar í boði fyrir metnaðarfulla iðkendur sína. Áhersla er lögð á einstaklingsfærni svo sem skottækni, gabbhreyfingar og sendingartækni. Þetta er fjórða árið sem þessar æfingar eru í boði og hefur verið mikil ánægja með þessa viðbót í starfið.

Öllum iðkendum KA og KA/Þórs í þessum árgöngum stendur til boða að nýta sér æfingarnar endurgjaldslaust. Skráning á æfingarnar er í gegnum netfangið jonni@ka.is.

Markmiðið með þessum æfingum er að bjóða okkar iðkendum sem þess óska að æfa aukalega, þar sem unnið verður með að bæta skottækni, auka skilning og bæta getu maður á mann, jafnt í vörn og sókn.

Rétt eins og í fyrra verður svo boðið upp á æfingar sérstaklega út frá þeirri stöðu sem iðkendur leika og verða séræfingar fyrir markmenn.

Æfingarnar fara fram kl. 6:20-7:20

  þriðjudaga föstudaga
6.jan-12.jan 3.-4.fl kvk (2001-2005) 3.-4.fl kk (2001-2005)
13.jan-19.jan 5.-6.fl kvk og 6.fl kk (eldri) (2006-2008) 5.fl kk (2006-2007)
20.jan-26.jan 3.-4.fl kvk (2001-2005) 3.-4.fl kk (2001-2005)
27.jan-2.feb 5.-6.fl kvk og 6.fl kk (eldri) (2006-2008) 5.fl kk (2006-2007)
3.feb-09.feb 3.-4.fl kvk (2001-2005) 3.-4.fl kk (2001-2005)
10.feb-16.feb 3.-4.fl kvk (2001-2005) 3.-4.fl kk (2001-2005)
17.feb-23.feb 3.-4.fl kvk (2001-2005) 3.-4.fl kk (2001-2005)
24.feb-1.mars 5.-6.fl kvk og 6.fl kk (eldri) (2006-2008) 5.fl kk (2006-2007)
2.mars-8.mars horna/línumenn eldri horna/línumenn yngri
9.mars-15.mars útispilarar eldri útispilarar yngri
16.mars-22.mars útispilarar/línumenn eldri útispilarar/línumenn yngri
23.mars-29.mars hornamenn eldri hornamenn yngri

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is