Tryggðu þér ársmiða fyrir veturinn!

Handbolti

Handboltaveislan er framundan gott fólk en fyrsti heimaleikur KA í vetur er á laugardaginn þegar ÍBV kemur í heimsókn. Stelpurnar í KA/Þór taka svo á móti Haukum þann 25. september og því eina vitið að koma sér í gírinn fyrir veisluna í vetur.

Ársmiðasalan er hafin í Stubbsappinu og kostar stakur ársmiði hjá hvoru liði aðeins 20.000 krónur. Ársmiðinn gildir á alla heimaleiki í Olísdeildinni.

Athugið að sérstakt tvennutilboð gildir í KA-Heimilinu í upphafi vetrar þar sem þú færð ársmiða hjá KA og KA/Þór saman á aðeins 30.000 krónur.

Gerum þetta saman í allan vetur, hlökkum til að sjá ykkur og áfram KA og KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is