Veislan hefst á sunnudaginn!

Handbolti

Handboltinn byrjar að rúlla á sunnudaginn þegar KA/Þór tekur á móti Fram í leik Meistara Meistaranna kl. 14:15. Liðin mættust eins og frægt er orðið á síðasta tímabili þegar stelpurnar okkar tryggðu sér sinn fyrsta titil í sögunni.

Í kjölfarið hömpuðu þær Deildar- og Íslandsmeistaratitlinum og það er alveg klárt að stelpurnar okkar ætla sér að byrja tímabilið af krafti og verja titilinn. Fram er hinsvegar með frábært lið og má búast við hörkuleik.

Miðasalan er hafin í Stubb en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri. Tvö áhorfendasvæði verða í boði, gengið er inn um aðalinngang og ramp rétt eins og á síðustu leiktíð.

Við hvetjum alla sem geta til að mæta á sunnudaginn og koma sér í gírinn fyrir spennandi handboltavetur, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is