    <language>is</language>
Knattspyrnufélag Akureyrar - Júdó
KA fjölmenntu á JRB International æfingabúðir
Júdódeild KA átti stærsta hópinn á dögunum þegar hinir árlegu vetrarbúðir, JRB International Kangeiko, fóru fram í Reykjanesbæ. Alls mættu 8 keppendur frá okkur, en samtals voru 41 þátttakandi á svæðinu. Þessi góða mæting sýnir vel hversu mikinn metnað iðkendur okkar hafa til að bæta sig.
Hópurinn okkar stóð sig frábærlega. Þrátt fyrir erfiðar æfingar kláruðu allir dagskrána með bros á vör. Þjálfarar annarra liða tóku sérstaklega eftir því hversu vel KA-hópurinn hagaði sér, bæði á æfingum og utan þeirra. Við sjáum oft nýjar hliðar á iðkendum í svona ferðum. Þau koma heim reynslunni ríkari og sterkari, sem nýtist svo öllu liðinu á æfingum heima á Akureyri. Eins og sagt er: Þegar einn bætir sig, þá græðir allt liðið.]]></description>
Þjálfari Júdódeildar KA tekur þátt í sögulegum viðburði í Róm
Eirini Fytrou, aðalþjálfari júdódeildar KA, var meðal þátttakenda á fyrsta námskeiði IJF Academy sem var eingöngu ætlað konum. Þessi sögulegi viðburður fór fram í Ólympíumiðstöðinni í Ostia á Ítalíu dagana 20.-25. október. Viðburðurinn markaði tímamót fyrir konur í júdóheiminum.]]></description>
Frábær árangur júdódeildar KA á hinu alþjóðlega JRB móti
Keppendur frá Júdódeild KA náðu frábærum árangri á alþjóðlega JRB mótinu sem fór fram helgina 18.-19. október í Ljónagryfjunni á Reykjanesbæ. Mótið var fjölmennt með yfir 100 keppendum frá ýmsum þjóðum.]]></description>
Glæsilegur árangur í júdó á Haustmóti JSÍ
Keppendur frá Júdódeild KA stóðu sig með prýði á Haustmóti JSÍ sem fram fór síðastliðinn laugardag, 4. október, í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi.]]></description>
Júdóæfingar að hefjast - Allir velkomnir
Júdódeild KA er að hefja haustönn sína og býður alla velkomna til að prófa og æfa íþróttina. Ólíkt mörgum öðrum íþróttum eru æfingar í boði fyrir alla aldurshópa, þar með talið fullorðna byrjendur.]]></description>
KA stefnir á að vera í fararbroddi í þróun júdóíþróttar fyrir fólk með þroskahömlun
Júdódeild KA á Akureyri hefur tekið þátt í evrópsku verkefni um aðlögun júdó fyrir einstaklinga með þroskahömlun. Eirini Fytrou, þjálfari hjá félaginu, var ein af 86 þjálfurum frá 14 löndum sem sóttu ráðstefnu í Madríd.
Eirini Fytrou frá Júdódeild KA á Akureyri var ein af þátttakendum á fyrstu ráðstefnu Judo Intellectual Disability Project (JIDP) í Madríd 10.-12. júlí. Ásamt henni var Annika Noack frá Tindastóli, en þær voru fulltrúar Íslands meðal 86 þjálfara frá 14 löndum.]]></description>
Birgir með silfurverðlaun á Íslandsmóti fullorðinna
KA-maðurinn knái, Birgir Arngrímsson, náði glæsilegum árangri um helgina þegar hann landaði silfurverðlaunum í -100 kg flokki á Íslandsmóti fullorðinna í júdó. Birgir, sem er búsettur í Reykjavík, sýndi ótrúlega frammistöðu þar sem hann vann þrjár glímur en tapaði einni]]></description>
Tveir Íslandsmeistarar á Íslandsmóti yngriflokka
Glæsilegur árangur náðist hjá keppendum Júdódeildar KA um helgina þegar keppt var á Íslandsmóti yngri flokka 2025 en alls skilaði KA heim tvo Íslandsmeistaratitla, og tveimur silfurverðlaunum]]></description>
Góður árangur KA keppenda í júdó á Vormóti JSÍ
Keppendur frá KA stóðu sig með prýði á nýafstöðnu Vormóti JSÍ sem haldið var hér á Akureyri. Félagið átti sex keppendur á mótinu sem allir náðu mjög góðum árangri í sínum flokkum. Nokkrir keppendanna kepptu í sínum fyrstu mótum og lögðu góðan grunn að frekari framförum í íþróttinni.]]></description>
Nýr þjálfari hjá Júdódeild KA - Eirini Fytrou
Við hjá Júdódeild KA erum spennt að tilkynna að Eirini Fytrou mun taka við sem nýr aðalþjálfari Júdódeildar KA. Eirini kemur frá Grikklandi og er með yfir 30 ára reynslu í júdó. Hún býr yfir mikilli þekkingu, færni og ástríðu fyrir íþróttinni. 
Eirini er þjálfari sem trúir því að allt byrji með því að byggja upp sjálfstraust og sjálfsvirðingu. Hún leggur ómældan metnað í nemendur sína og hefur sérstaka hæfileika til að hjálpa þeim að ná sínum besta mögulega árangri. ]]></description>
Unnar Þorgilsson í þriðja sæti á Íslandsmóti fullorðinna í júdó
KA maðurinn Unnar Þorgilsson lenti í þriðja sæti á Íslandsmóti fullorðinna í júdó um síðustu helgi en hann keppti í -81kg. flokki. Unnar er gríðarlega öflugur keppnismaður sem sýnir sig með þessum frábæra árangri. Innilega til hamingju með árangurinn Unnar !]]></description>
Þröstur Leó Íslandsmeistari í júdó
Þröstur Leó Sigurðsson gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari í U15 ára um helgina. Þröstur sem hefur æft af kappi í vetur sigraði allar sínar viðureignir á Ippon. KA fór með tíu manna keppnishóp á Íslandsmótið og náði hópurinn frábærum árangri]]></description>
Líf og fjör á Norðurlandsmóti í júdó
Um helgina hélt júdódeild KA Norðurlandsmót í júdó í KA heimilinu. Alls voru 34 keppendur frá þremur klúbbum norðurlands, Pardusi frá Blönduósi, Tindastóli frá Sauðárkróki auk júdódeildar KA. 
Langflestir keppendur voru að keppa á sínu fyrsta móti og því mikil spenna og eftirvænting meðal keppenda. Þátttökuverðlaun voru veitt fyrir aldursflokkinn 6-10 ára.
Tveir flokkar voru í ungmennaflokkum. Í -46kg flokki voru úrslit eftirfrandi:
1.  Bjarkan Kató Ómarsson (KA), 
2. Þröstur Leó Sigurðsson (KA),
3. Sigtryggur Kjartansson (KA). 
Í -50kg.: voru úrslit eftirfarandi:
1. Jón Ari Skúlason (KA), 
2. Gísli Valberg Jóhannsson (KA) 
3. Caitlynn Morrie Sandoval Mertola (Tindastóli). 
Í unglingaflokki í -73kg.:
1. Birkir Bergsveinsson (KA). 
2. Þröstur Einarsson (Pardus)
3. Freyr Hugi Herbergsson (Tindastóll).
Í fullorðins flokki í +100 kg.:
1. Björn Grétar Baldursson (KA).
2. Snæbjörn Rolf Blischke Oddsson (KA) 
3. Breki Mikael Adamsson (KA). 
Birgir Arngríms með silfur - Ingólfur meiddist á öxl
Birgir Arngrímsson gerði sér lítið fyrir og landaði 2. sæti í judo á vormóti seniora um síðustu helgi. KA átti tvo keppendur, þá Birgi Arngrímsson og Ingólf Þór Hannesson. Báðir kepptu í -90 kg. flokki. Birgir sigraði allar sínar glímur á ippon nema á móti öflugum Grikkja sem sigraði flokkinn. Ingólfur Hannesson varð fyrir því óláni að meiðast á öxl í fyrstu glímu og gat því ekki tekið meira þátt í mótinu.  ]]></description>
KA ungmenni stóðu sig vel á Vormóti JSÍ
Ungir KA menn náðu góðum árangri í bæði 18 ára 21 árs flokki um helgina í Judo en mótið var haldið í KA heimilinu.  Í flokki undir 18 ára vann Margrét Matthíasdóttir til gullverðlauna í 63kg. flokki kvenna og Samir Jónsson til silfurverðlauna í -66 kg þyngdarflokki karla. ]]></description>
Birkir Bergsveinsson með brons á Reykjavik Judo Open.
Birkir Bergsveinsson átti gott mót og lenti í þriðja sæti á Reykjavik Judo Open um helgina.  
Reykjavik Judo Open er alþjóðlegt mót sem hefur farið stækkandi undanfarin ár og í ár voru tæplega 50 erlendir keppendur mættir til leiks. ]]></description>
Byrjendaæfingar í judo
Judodeild KA er að fara af stað með byrjendaæfingar í judo fyrir 15 ára og eldri. Æfingar verða á miðvikudögum frá kl. 17:30 - 18:30 og verða fram að jólum. Fyrsta æfing hefst miðvikudaginn 19. október. ATH! judogalli fylgi með æfingagjöldunum.]]></description>
Judoæfingar eru að hefjast
Judoæfingar hefjast mánudaginn 22. ágúst í KA heimilinu. Judoæfingar eru fyrir alla einstaklinga frá 6 ára aldri (1. bekk).  Við bjóðum alla velkomna að prófa, nýja sem gamla iðkendur.]]></description>
Anna Soffía tvöfaldur íslandsmeistari í júdó
Anna Soffía Víkingsdóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði tvöfalt á íslandsmeistaramóti í júdó um helgina en hún keppir fyrir hönd KA. Anna Soffía kom ákveðin til leiks og sigraði allar sínar glímur á ippon eða fullnaðarsigri á mótinu. Alls hefur Anna Soffía Víkingsdóttir orðið nítján sinnum íslandsmeistari í júdó.]]></description>
Gylfi og Hannes keppa á RIG á morgun
Reykjavík International Games eða RIG fer fram á morgun, laugardag, og munu þeir Gylfi Rúnar Edduson og Hannes Snævar Sigmundsson keppa fyrir hönd júdódeildar KA. Gylfi mun keppa í flokki -73 kg og Hannes í -66 kg flokknum]]></description>