    <language>is</language>
Almennt | Knattspyrnufélag Akureyrar - Júdó
Júdódeild KA vekur athygli í virtasta júdótímariti Frakklands
Franska júdótímaritið L'Esprit du Judo, sem talið er helsta viðmiðunarrit júdóheimsins í Evrópu, fjallar um Júdódeild KA í nýjasta tölublaði sínu. Umfjöllunin, sem spannar fjórar blaðsíður undir fyrirsögninni „Ísland – land elds og ísa“, birtist í fastadálki tímaritsins Dojo du Monde, þar sem blaðamenn þess heimsækja júdófélög víðs vegar um heiminn – og að þessu sinni varð Akureyri fyrir valinu.]]></description>
Eirini Fytrou lýkur alþjóðlegu þjálfaranámi í júdó fyrir ungmenni með þroskahömlun
Eirini Fytrou, þjálfari hjá Júdódeild KA, hefur lokið alþjóðlegu þjálfaranámi í júdó fyrir ungmenni með þroskahömlun og hlotið formlega viðurkenningu frá Blanquerna-háskóla í Barcelona. Námið var hluti af evrópska samstarfsverkefninu Judo Intellectual Disability Project (JIDP), sem styrkt er af Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins.
Námið stóð yfir í tvö og hálft ár og fól í sér netnám ásamt tveimur alþjóðlegum staðnámskeiðum, í Madríd 2025 og Poznan í Póllandi í júní síðastliðnum. Á lokaviðburðinum í Poznan komu saman yfir 60 þjálfarar og sérfræðingar frá 15 löndum, þar sem Eirini var í hópi fjögurra íslenskra þátttakenda.]]></description>
Gull, tvö brons og mikil barátta: Frábær árangur KA á Íslandsmeistaramóti í júdó
Laugardaginn 9. maí fór fram Íslandsmeistaramót í júdó fyrir aldursflokkana U13, U15, U18 og U21. Mótið fór fram í húsakynnum Ármanns. Keppendur frá Júdódeild KA voru að sjálfsögðu mættir til leiks og stóðu sig með stakri prýði.
Það sem gerði árangur helgarinnar sérstaklega skemmtilegan var að allir okkar keppendur voru að stíga sín fyrstu skref í nýjum og hærri aldursflokkum. Þrátt fyrir það létu þau engan bilbug á sér finna.]]></description>
KA fjölmenntu á JRB International æfingabúðir
Júdódeild KA átti stærsta hópinn á dögunum þegar hinir árlegu vetrarbúðir, JRB International Kangeiko, fóru fram í Reykjanesbæ. Alls mættu 8 keppendur frá okkur, en samtals voru 41 þátttakandi á svæðinu. Þessi góða mæting sýnir vel hversu mikinn metnað iðkendur okkar hafa til að bæta sig.
Hópurinn okkar stóð sig frábærlega. Þrátt fyrir erfiðar æfingar kláruðu allir dagskrána með bros á vör. Þjálfarar annarra liða tóku sérstaklega eftir því hversu vel KA-hópurinn hagaði sér, bæði á æfingum og utan þeirra. Við sjáum oft nýjar hliðar á iðkendum í svona ferðum. Þau koma heim reynslunni ríkari og sterkari, sem nýtist svo öllu liðinu á æfingum heima á Akureyri. Eins og sagt er: Þegar einn bætir sig, þá græðir allt liðið.]]></description>
Þjálfari Júdódeildar KA tekur þátt í sögulegum viðburði í Róm
Eirini Fytrou, aðalþjálfari júdódeildar KA, var meðal þátttakenda á fyrsta námskeiði IJF Academy sem var eingöngu ætlað konum. Þessi sögulegi viðburður fór fram í Ólympíumiðstöðinni í Ostia á Ítalíu dagana 20.-25. október. Viðburðurinn markaði tímamót fyrir konur í júdóheiminum.]]></description>
Frábær árangur júdódeildar KA á hinu alþjóðlega JRB móti
Keppendur frá Júdódeild KA náðu frábærum árangri á alþjóðlega JRB mótinu sem fór fram helgina 18.-19. október í Ljónagryfjunni á Reykjanesbæ. Mótið var fjölmennt með yfir 100 keppendum frá ýmsum þjóðum.]]></description>
Glæsilegur árangur í júdó á Haustmóti JSÍ
Keppendur frá Júdódeild KA stóðu sig með prýði á Haustmóti JSÍ sem fram fór síðastliðinn laugardag, 4. október, í íþróttahúsi Vallaskóla á Selfossi.]]></description>
Júdóæfingar að hefjast - Allir velkomnir
Júdódeild KA er að hefja haustönn sína og býður alla velkomna til að prófa og æfa íþróttina. Ólíkt mörgum öðrum íþróttum eru æfingar í boði fyrir alla aldurshópa, þar með talið fullorðna byrjendur.]]></description>
KA stefnir á að vera í fararbroddi í þróun júdóíþróttar fyrir fólk með þroskahömlun
Júdódeild KA á Akureyri hefur tekið þátt í evrópsku verkefni um aðlögun júdó fyrir einstaklinga með þroskahömlun. Eirini Fytrou, þjálfari hjá félaginu, var ein af 86 þjálfurum frá 14 löndum sem sóttu ráðstefnu í Madríd.
Eirini Fytrou frá Júdódeild KA á Akureyri var ein af þátttakendum á fyrstu ráðstefnu Judo Intellectual Disability Project (JIDP) í Madríd 10.-12. júlí. Ásamt henni var Annika Noack frá Tindastóli, en þær voru fulltrúar Íslands meðal 86 þjálfara frá 14 löndum.]]></description>
Nýr þjálfari hjá Júdódeild KA - Eirini Fytrou
Við hjá Júdódeild KA erum spennt að tilkynna að Eirini Fytrou mun taka við sem nýr aðalþjálfari Júdódeildar KA. Eirini kemur frá Grikklandi og er með yfir 30 ára reynslu í júdó. Hún býr yfir mikilli þekkingu, færni og ástríðu fyrir íþróttinni. 
Eirini er þjálfari sem trúir því að allt byrji með því að byggja upp sjálfstraust og sjálfsvirðingu. Hún leggur ómældan metnað í nemendur sína og hefur sérstaka hæfileika til að hjálpa þeim að ná sínum besta mögulega árangri. ]]></description>
Líf og fjör á Norðurlandsmóti í júdó
Um helgina hélt júdódeild KA Norðurlandsmót í júdó í KA heimilinu. Alls voru 34 keppendur frá þremur klúbbum norðurlands, Pardusi frá Blönduósi, Tindastóli frá Sauðárkróki auk júdódeildar KA. 
Langflestir keppendur voru að keppa á sínu fyrsta móti og því mikil spenna og eftirvænting meðal keppenda. Þátttökuverðlaun voru veitt fyrir aldursflokkinn 6-10 ára.
Tveir flokkar voru í ungmennaflokkum. Í -46kg flokki voru úrslit eftirfrandi:
1.  Bjarkan Kató Ómarsson (KA), 
2. Þröstur Leó Sigurðsson (KA),
3. Sigtryggur Kjartansson (KA). 
Í -50kg.: voru úrslit eftirfarandi:
1. Jón Ari Skúlason (KA), 
2. Gísli Valberg Jóhannsson (KA) 
3. Caitlynn Morrie Sandoval Mertola (Tindastóli). 
Í unglingaflokki í -73kg.:
1. Birkir Bergsveinsson (KA). 
2. Þröstur Einarsson (Pardus)
3. Freyr Hugi Herbergsson (Tindastóll).
Í fullorðins flokki í +100 kg.:
1. Björn Grétar Baldursson (KA).
2. Snæbjörn Rolf Blischke Oddsson (KA) 
3. Breki Mikael Adamsson (KA). 
Birgir Arngríms með silfur - Ingólfur meiddist á öxl
Birgir Arngrímsson gerði sér lítið fyrir og landaði 2. sæti í judo á vormóti seniora um síðustu helgi. KA átti tvo keppendur, þá Birgi Arngrímsson og Ingólf Þór Hannesson. Báðir kepptu í -90 kg. flokki. Birgir sigraði allar sínar glímur á ippon nema á móti öflugum Grikkja sem sigraði flokkinn. Ingólfur Hannesson varð fyrir því óláni að meiðast á öxl í fyrstu glímu og gat því ekki tekið meira þátt í mótinu.  ]]></description>
KA ungmenni stóðu sig vel á Vormóti JSÍ
Ungir KA menn náðu góðum árangri í bæði 18 ára 21 árs flokki um helgina í Judo en mótið var haldið í KA heimilinu.  Í flokki undir 18 ára vann Margrét Matthíasdóttir til gullverðlauna í 63kg. flokki kvenna og Samir Jónsson til silfurverðlauna í -66 kg þyngdarflokki karla. ]]></description>
Birkir Bergsveinsson með brons á Reykjavik Judo Open.
Birkir Bergsveinsson átti gott mót og lenti í þriðja sæti á Reykjavik Judo Open um helgina.  
Reykjavik Judo Open er alþjóðlegt mót sem hefur farið stækkandi undanfarin ár og í ár voru tæplega 50 erlendir keppendur mættir til leiks. ]]></description>
Byrjendaæfingar í judo
Judodeild KA er að fara af stað með byrjendaæfingar í judo fyrir 15 ára og eldri. Æfingar verða á miðvikudögum frá kl. 17:30 - 18:30 og verða fram að jólum. Fyrsta æfing hefst miðvikudaginn 19. október. ATH! judogalli fylgi með æfingagjöldunum.]]></description>
Judoæfingar eru að hefjast
Judoæfingar hefjast mánudaginn 22. ágúst í KA heimilinu. Judoæfingar eru fyrir alla einstaklinga frá 6 ára aldri (1. bekk).  Við bjóðum alla velkomna að prófa, nýja sem gamla iðkendur.]]></description>
Anna Soffía tvöfaldur íslandsmeistari í júdó
Anna Soffía Víkingsdóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði tvöfalt á íslandsmeistaramóti í júdó um helgina en hún keppir fyrir hönd KA. Anna Soffía kom ákveðin til leiks og sigraði allar sínar glímur á ippon eða fullnaðarsigri á mótinu. Alls hefur Anna Soffía Víkingsdóttir orðið nítján sinnum íslandsmeistari í júdó.]]></description>
Júdóæfingar falla niður þessa viku
Kæru foreldrar og iðkendur í júdó.  
Vegna aukinna smita í grunnskólum Akureyrar hefur stjórn júdódeildar ákveðið að fella niður æfingar hjá grunnskólakrökkum út komandi viku (4. - 8. október). ]]></description>
Júdóæfingar hefjast hjá yngriflokkum
Æfingar fyrir börn fædd 2005 og síðar hefjast samkvæmt æfingatöflu á morgun miðvikudag 18. nóv.
Júdóæfingar barna mega hefjast aftur, samkvæmt nýrri reglugerð sem tekur gildi á morgun 18. nóv. Verður börnum fæddum 2005 og síðar heimilt að mæta aftur til æfinga. Gunni og Berenika eru full tilhlökkunar og klár í að taka við krökkunum, líkleg tilbúin með ný tök og jafnvel köst líka.]]></description>
Orðsending vegna júdóæfinga næstu daga
Mikilvægasta vörnin gegn COVID-19 í tengslum við æfingar er að farið sé eftir tilmælum heilbrigðisyfirvalda eins og nokkur kostur er. Heimilt er að stunda keppnisíþróttir og við stefnum því á að halda úti júdóæfingum eins og kostur er.  Undanþága frá 1 metra reglu fyrir iðkendur og þjálfara gildir aðeins á æfingasvæðinu, ekki utan þess. ]]></description>