Ingþór, Bergþór og Helga sigruðu á Vormóti KA í júdó.

Vormót KA í júdó fór fram síðasta miðvikudag.  Keppt var í 3 flokkum, -80kg og +80kg karla og opnum flokki kvenna. 

Í kvennaflokki sigraði Helga Hansdóttir, Kristín Ásta Guðmundsdóttir varð í öðru sæti og Fiona Sigurðardóttir í því þriðja.  Stelpurnar eru búnar að æfa óhemju vel í vetur og hafa tekið stórstígum framförum. 

Í -80kg flokki Sigraði Bergþór Steinn Jónsson, Hans Rúnar Snorrason varð í örðu sæti og Eyjólfur Guðjónsson varð í þriðja sæti.  Glíman milli Hans Rúnars og Bergþórs var sérlega skemmtileg.  Bergþór hafði þar sgiru með glæsilegu kasti.

Í +80kg flokki sgraði Ingþór Örn Valdimarsson örugglega.  Adam Brands Þórarinsson varð í öðru sæti og Jón Óðinn Waage í þriðja.  Adam hefur æft manna best í vetur og er í mikilli framför.

Næsta verkefni júdómanna verður lanfsmót UMFÍ í sumar en þar er júdó meðal keppnisgreina.