Allir keppendur KA á pall og Breki Íslandsmeistari

Júdó
Allir keppendur KA á pall og Breki Íslandsmeistari
Glæsilegur hópur KA á móti helgarinnar

Um helgina fór fram Íslandsmeistaramót unglinga í júdó og átti Júdódeild KA alls níu fulltrúa á mótinu, sex drengi og þrjár stúlkur. Eftir erfiðan vetur voru krakkarnir spenntir að fá að reyna á sig á stóra sviðinu og ekki stóð á árangri hjá þeim.

Helst ber að nefna Íslandsmeistaratitil Breka Mikaels Adamssonar í -81kg flokki drengja undir 18 ára. Frábær árangur hjá honum og fylgdu allir aðrir keppendur KA honum eftir með að komast á verðlaunapall og niðurstaðan eftir mótið er því ein gullverðlaun, sex silfurverðlaun og tvö bronsverðlaun sem bættust í glæsta verðlunakistu Júdódeildar KA.

Við óskum þessum frábæru krökkum til hamingju með magnaðan árangur!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is