Alexander og Berenika júdófólk KA 2018

Almennt | Júdó
Alexander og Berenika júdófólk KA 2018
Alexander og Berenika

Alexander Heiðarsson er júdómaður KA 2018 og Berenika Bernat er júdókona KA 2018.

Þau eru vel að útnefningunum komin. Alexander var á árinu Íslandsmeistari í flokki fullorðinna í -66 kg flokki og Berenika varð Íslandsmeistari í undir 18 ára flokki, undir 21 árs flokki og opnum flokki fullorðinna. Alexander tók þátt í sex alþjóðlegum mótum og vann þar til tveggja verðlauna. Berenika tók þátt í tveimur alþjóðlegum mótum og stóð sig með sóma.

Unnar Þorri Þorgilsson vann hinn árlega bikar sem gefinn er fyrir mestu framfarirnar

KA óskar þeim öllum innilega til hamingju.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is