Mateo og Paula framlengja við KA

Blak

Blakdeild KA hefur gert nýja samninga við þau Miguel Mateo Castrillo og Paula del Olmo Gomez. Þau Mateo og Paula hafa skipað algjört lykilhlutverk bæði innan sem utan vallar í blakstarfi KA undanfarin ár og virkilega ánægjulegt að þau taki áfram slaginn með okkur.

Þau Mateo og Paula gengu til liðs við KA fyrir veturinn 2018-2019 og eru því að hefja sitt fjórða tímabil með KA. Árið áður léku þau með Þrótti Neskaupstað og hafa því búið hér á landi frá árinu 2017 og hafa aðlagast samfélaginu okkar ansi vel.

Mateo hefur verið stigahæsti leikmaður Mizunodeildar karla undanfarin fjögur ár og verið einn besti leikmaður deildarinnar. Með KA hefur hann orðið Íslandsmeistari, Bikarmeistari og Deildarmeistari auk þess að verða Ofurbikarmeistari á síðustu leiktíð.

Þá tók Mateo við stjórn kvennaliðs KA er hann og Paula gengu til liðs við KA og síðan þá hefur liðið orðið Íslandsmeistari, Bikarmeistari og tvívegis Deildarmeistari. Paula hefur leikið gríðarlega vel með KA og ávallt verið ein af stigahæstu leikmönnum deildarinnar og er mikill karakter á velli sem drífur aðra leikmenn með sér.

Paula hefur einnig tekið til sín í þjálfun yngriflokka hjá KA þar sem hún hefur lyft miklu grettistaki en hún er ákaflega vel liðin og hefur bæði góður árangur nást innan vallar auk þess sem mikil fjölgun  iðkenda hefur orðið í kjölfarið.

Við hlökkum mikið til áframhaldandi samstarfs við þau Mateo og Paulu enda bæði frábærir karakterar sem skipa algjört lykilhlutverk í áframhaldandi uppbyggingu blakstarfsins hjá KA og eru heldur betur magnaðar fyrirmyndir fyrir okkar yngri iðkendur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is