Myndband frá bikarsigri KA í blaki

Blak

KA getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna með sigri á Aftureldingu klukkan 19:00 í KA-Heimilinu í kvöld. Það er frítt inn og eina vitið að mæta og styðja okkar magnaða lið til sigurs!

Stelpurnar urðu Bikarmeistarar á dögunum er þær lögðu einmitt Aftureldingu að velli í úrslitaleiknum og um að gera að rifja þann magnaða leik upp til að koma sér í gírinn en leikurinn er einhver magnaðasti blakleikur hér á landi síðari tíma.

Ágúst Stefánsson tók myndbandið saman en myndefnið er fengið úr útsendingu RÚV frá bikarúrslitaleiknum.

Hlökkum til að sjá ykkur í stúkunni í kvöld en ef þið komist ómögulega á völlinn er leikurinn í beinni útsendingu á KA-TV.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is