Stelpurnar ætla sér titilinn í dag!

Blak

Það er hreinn úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna í KA-Heimilinu í dag klukkan 16:00 þegar KA og HK mætast í fimmta skiptið í einvíginu um titilinn. Stelpurnar eru Deildar- og Bikarmeistarar og þurfa á þínum stuðning að halda til að hampa fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í blaki kvenna í sögu KA.

Hlökkum til að sjá ykkur öll gulklædd í stúkunni, gerum þetta að sögulegum degi í sögu KA, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is