Stelpurnar hömpuðu bikarnum í Kjarnaskógi

Blak

Kvennalið KA í blaki varði Deildarmeistaratitilinn í vetur en stelpurnar unnu 13 af 14 leikjum sínum í deildinni og stóðu uppi sem verðskuldaðir meistarar. Það er þó óhætt að segja að sigurgleðin hafi verið furðuleg en blaktímabilinu var slaufað þegar ein umferð var eftir af deildinni og úrslitakeppnin framundan.

Í kvöld fékk liðið hinsvegar afhentan sjálfan Deildarmeistaratitilinn við skemmtilega athöfn í Kjarnaskógi. Stelpurnar gátu því loksins fagnað titlinum almennilega ásamt því að vera áfram ríkjandi Bikar- og Íslandsmeistarar þar sem þeim mótum var aflýst í vetur.

Þetta er annað árið í röð sem KA verður Deildarmeistari í blaki kvenna og í þriðja skiptið í sögunni. KA getur því unnið titilinn til eignar með því að hampa honum næsta vetur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is