Strandblaksæfingar krakka hefjast 17. júní

Blak

Blakdeild KA verður með strandblaksæfingar í Kjarnaskógi í sumar fyrir krakkana og mun Paula del Olmo sjá um þjálfunina. Æfingarnar munu hefjast 17. júní og ljúka 30. ágúst, vikufrí verður í lok júlí. Æfingjagjöldin eru 20.000 krónur á hvern iðkanda. Æfingarnar eru hugsaðar fyrir krakka 9-16 ára.

Æft verður tvisvar í viku og munu æfingarnar fara fram eftir veðráttu. Hver æfing verður klukkutími að lengd og þá verða haldin mót yfir sumarið. Skráning fer fram í gegnum Paulu í netfanginu pauladelolmo@yahoo.es.

Ef einhverjar spurningar eru varðandi æfingarnar þá er um að gera að hafa samband við Paulu í netfanginu hér fyrir ofan.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is