Mateo annar í kjöri íþróttamanns Akureyrar

Júdó | Blak
Mateo annar í kjöri íþróttamanns Akureyrar
Verðlaunahafar kvöldsins

Kjör íþróttamanns Akureyrar árið 2019 fór fram í menningarhúsinu Hofi í gærkvöldi. Valin var bæði íþróttakarl og íþróttakona ársins en að þessu sinni hlutu listhlaupakonan Aldís Kara Bergsdóttir og kraftlyftingamaðurinn Viktor Samúelsson sæmdarheitið.

KA átti að sjálfsögðu sína fulltrúa á hófinu en blakkappinn Miguel Mateo Castrillo sem nýverið var kjörinn íþróttamaður KA fyrir árið 2019 varð í 2. sæti hjá körlunum og þá var Alexander Heiðarsson úr júdódeild KA í 5. sæti.

Hjá konunum varð Hulda Elma Eysteinsdóttir frá blakdeild KA í 3. sæti. KA vill óska þeim Aldísi og Viktori til hamingju sem og öðrum verðlaunahöfum kvöldsins.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is