10 fulltrúar KA í U15 og U16 landsliðunum

Handbolti
10 fulltrúar KA í U15 og U16 landsliðunum
Fulltrúar okkar í U15 ára hópnum

KA á alls 10 fulltrúa í landsliðshópum U15 og U16 ára landsliða Íslands í handbolta sem munu koma saman til æfinga helgina 5.-7. nóvember næstkomandi. Það segir ansi mikið um það frábæra starf sem er unnið hjá félaginu að eiga jafn marga fulltrúa í hópunum tveimur.

Aron Daði Stefánsson, Ingólfur Benediktsson, Leó Friðriksson, Úlfar Örn Guðbjargarson og Þórir Hrafn Ellertson eru fulltrúar okkar í U15 ára landsliðinu en því stýra þeir Halldór Jóhann Sigfússon og Haraldur Þorvarðarson.


Fulltrúar okkar í U16 ára hópnum

Dagur Árni Heimisson, Hugi Elmarsson, Jens Bergþórsson, Magnús Jónatansson og Óskar Þórarinsson voru svo valdir í U16 ára landsliðið en þjálfarar liðsins eru þeir Heimir Örn Árnason og Hrannar Guðmundsson.

Við óskum strákunum innilega til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband