142 miðar til sölu á KA - Haukar

Handbolti

KA tekur á móti Haukum í hörkuleik í Olísdeild karla í handboltanum klukkan 18:00 í kvöld en þetta verður fyrsti leikur strákanna þar sem áhorfendur verða leyfðir frá því í haust.

Alls verða 142 miðar í boði og athugið að börn eru inni í þeirri tölu. Miðasala hefst kl. 16:00 í KA-Heimilinu og mun miðinn kosta 1.500 krónur hvort sem um ræðir börn eða fullorðinn einstakling. Ársmiðahafar þurfa að mæta og sýna ársmiðann sinn til að tryggja sér miða.

Er miði er verslaður verður tekið niður nafn, símanúmer og kennitala viðkomandi samkvæmt nýjustu sóttvarnarreglum. Athugið að grímuskylda er á leiknum.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur í KA-Heimilinu en fyrir þá sem ekki komast á leikinn verður hann í beinni á KA-TV og er hægt að nálgast útsendinguna hér fyrir neðan:


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband