Aðalfundur KA og deilda félagsins

Almennt

Aðalfundur Knattspyrnufélags Akureyrar verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl klukkan 18:00 í fundarsal félagsins í KA-Heimilinu. Þá munu aðalfundir handknattleiks-, blak-, júdó- og spaðadeildar fara fram milli klukkan 17:00 og 18:00.

Jafnframt tilkynnist að vegna samkomubanns og þeirra fordæmalausu tíma sem nú eru uppi verður lögð fram tilllaga á öllum þessum fundum um að fresta aðalfundunum um óákveðinn tíma. Til framhaldsfundar verður boðað með sama hætti og gildir um boðun aðalfundar samkvæmt lögum félagsins.

17:00 - Aðalfundur Handknattleiksdeildar
17:15 - Aðalfundur Blakdeildar
17:30 - Aðalfundur Júdódeildar
17:45 - Aðalfundur Spaðadeildar
18:00 - Aðalfundur KA


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband