Áki hampaði bikarnum fræga

Handbolti

Áki Egilsnes var besti leikmaður karlaliðs KA á nýliðnu tímabili í handboltanum en liðið tryggði sér eins og flestir ættu að vita sæti í deild þeirra bestu. Áki var upptekinn á landsliðsæfingum í Færeyjum þegar lokahófið fór fram og fékk því bikarinn nú fyrir skömmu.

KA lék aftur undir sínu eigin merki eftir að hafa leikið undir merkjum Akureyrar Handboltafélags frá árinu 2006. Það vakti mikla athygli á lokahófinu þegar bikarinn fyrir besta leikmann karlaliðsins var dreginn fram en hann var gjöf til handknattleiksdeildarinnar árið 1993 og eru nokkur ansi fræg nöfn á þessum merka bikar sem fór í frí á meðan sameinaða lið Akureyrar lék.

Á sama tíma og við óskum Áka aftur til hamingju með valið þá rifjum við upp þá frábæru leikmenn sem hafa hampað þessum frábæra bikar.

Besti leikmaður KA 2017-2018

Áki Egilsnes

Besti leikmaður KA 2005-2006

Jónatan Magnússon

Besti leikmaður KA 2004-2005

Halldór Jóhann Sigfússon

Besti leikmaður KA 2003-2004

Arnór Atlason

Besti leikmaður KA 2002-2003

Jónatan Magnússon

Besti leikmaður KA 2001-2002

Andrius Stelmokas

Besti leikmaður KA 2000-2001

Guðjón Valur Sigurðsson

Besti leikmaður KA 1999-2000

Guðjón Valur Sigurðsson

Besti leikmaður KA 1998-1999

Lars Walther

Besti leikmaður KA 1997-1998

Sigtryggur Albertsson

Besti leikmaður KA 1996-1997

Björgvin Þór Björgvinsson

Besti leikmaður KA 1995-1996

Róbert Julian Duranona

Besti leikmaður KA 1994-1995

Patrekur Jóhannesson

Besti leikmaður KA 1993-1994

Valdimar Grímsson

Besti leikmaður KA 1992-1993

Alfreð Gíslason


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband