Andri Snær lætur staðar numið með KA/Þór

Handbolti

Andri Snær Stefánsson hefur tilkynnt stjórn KA/Þórs að hann muni láta staðar nema og hætta þjálfun á liði meistaraflokks félagsins. Andri Snær hefur stýrt meistaraflokki KA/Þórs undanfarin þrjú tímabil og má með sanni segja að sá kafli hafi verið heldur betur blómlegur og voru stór skref stigin fram á við.

Á fyrsta tímabili liðsins undir stjórn Andra, veturinn 2020-2021, skrifaði liðið söguna upp á nýtt í kvennahandboltanum á Akureyri en stelpurnar hömpuðu sínum fyrstu stóru titlum er liðið varð Íslandsmeistari, Bikarmeistari, Deildarmeistari auk þess að vera Meistari Meistaranna og var því handhafi allra stóru titlanna í handboltanum á sama tíma.

Í kjölfarið náði liðið sínum næstbesta árangri veturinn 2021-2022 þegar stelpurnar enduðu í 3. sæti Olísdeildarinnar aðeins tveimur stigum frá toppsætinu auk þess sem liðið fór í undanúrslit úrslitakeppninnar og bikarkeppninnar.

Miklar breytingar urðu á liðinu fyrir nýliðið tímabil og fengu margir ungir leikmenn að spreita sig og taka mikla ábyrgð í leikjunum. Stelpurnar enduðu að lokum í 6. sæti deildarinnar og féllu úr leik í úrslitakeppninni eftir oddaleik. Það eru því bjartir tímar framundan og spennandi að sjá liðið á næstu leiktíð.

Við þökkum Andra Snæ kærlega fyrir samstarfið undanfarin ár og hans ómetanlega starf við að lyfta kvennahandboltanum hér fyrir norðan upp á enn hærra plan.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband