Anna Ţyrí náđi 5. sćti á EM međ U-19

Handbolti
Anna Ţyrí náđi 5. sćti á EM međ U-19
Frábćr árangur hjá mögnuđu liđi (mynd: HSÍ)

Anna Ţyrí Halldórsdóttir og félagar hennar í U-19 ára landsliđi Íslands gerđi sér lítiđ fyrir og náđi 5. sćtinu á Evrópumeistaramótinu í Búlgaríu. Stelpurnar hófu mótiđ vel međ ţví ađ leggja Grikkland ađ velli 22-14 eftir ađ hafa leitt 13-7 í hálfleik. Ţví nćst kom skellur gegn heimastúlkum í Búlgaríu ţar sem leikurinn tapađist í fyrri hálfleik, ađ honum loknum var stađan 15-8 og lokatölur 24-16 fyrir Búlgaríu.

Nćsti leikur var gegn sterku liđi Serba, stelpurnar stóđu vel í ţeim Serbnesku í upphafi og var stađan jöfn 6-6. En Ţá skildu leiđir og ađ lokum tapađist leikurinn stórt, 14-22. Í lokaleik riđlakeppninnar mćttu stelpurnar Stóra Bretlandi og ţađ var aldrei spurning hvar sigurinn í ţeim leik myndi enda. Stelpurnar komust í 10-0 og unnu ađ lokum 39-12 sigur.

Ísland endađi ţar međ í 3. sćti í riđlinum og keppti um 5.-8. sćtiđ á mótinu. Ţar mćttu stelpurnar Finnlandi og ţćr leiddu allan leikinn en tókst ţó aldrei ađ hrista ţćr finnsku alveg af sér. Lokatölur voru 23-19 og stelpurnar komnar í leikinn um 5. sćtiđ á mótinu.

Ţar mćttu stelpurnar Grikklandi sem ţćr höfđu unniđ sannfćrandi í riđlakeppninni. Leikurinn var jafn í upphafi en er leiđ á leikinn jókst munurinn og hálfleikstölur voru 18-12 Íslandi ívil. Lokatölur urđu svo 29-22 og 5. sćtiđ stađreynd.

Mjög góđur árangur hjá stelpunum og ljóst ađ ţćr mega vera mjög stoltar af ţessari niđurstöđu. Vissulega hefđi veriđ gaman ađ ná ađ hanga betur í Búlgörum og Serbum en ţar eru á ferđinni gríđarlega sterk liđ og gaman ađ sjá hvort okkur takist ađ minnka muninn á komandi árum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband