Arnar Grétarsson áfram međ KA

Fótbolti
Arnar Grétarsson áfram međ KA
Arnar verđur áfram fyrir norđan (mynd: Sćvar Geir)

Knattspyrnudeild KA og Arnar Grétarsson hafa gengiđ frá samkomulagi um ađ Arnar muni áfram stýra liđi KA á nćstu leiktíđ. Arnar sem tók viđ liđinu um mitt seinasta sumar hefur komiđ af miklum krafti inn í félagiđ og lyft öllu starfi okkar upp á hćrra plan.

KA liđiđ situr í 3. sćti Pepsi Max deildarinnar fyrir lokaumferđina sem fer fram á morgun en ţá mćtir KA liđi FH á Greifavellinum á Akureyri og hefst leikurinn 14:00. Sigur í leiknum myndi tryggja nćstbesta árangur félagsins í sögunni auk ţess sem ađ ţriđja sćtiđ gćti gefiđ ţátttökurétt í Evrópukeppni ađ ári.

Ekki einungis hefur Arnar leitt árangur liđsins innan vallar, sem veriđ hefur til fyrirmyndar, heldur hefur hann komiđ međ sína miklu ţekkingu á alţjóđlegri knattspyrnu inn í allt starfiđ í kringum knattspyrnudeild KA. Ţannig er allt ţjálfarateymiđ skipulagt til ađ ţroska leikmenn og liđsheild ţannig ađ bćđi félagiđ sem og einstaklingar innan liđanna nái stöđugt ađ bćta sig.

Arnar Grétarsson á ađ baki farsćlan feril sem leikmađur hér heima, en einnig lék hann lengi vel sem atvinnumađur, bćđi á Grikklandi og í Belgíu. Arnar á ađ baki 71 landsleik fyrir Íslands hönd. Sem ţjálfari hefur hann stýrt Breiđablik og KA hér heima og KSV Roeselare í Belgíu auk ţess sem hann var yfirmađur knattspyrnumála hjá AEK Aţenu í Grikklandi og Club Brugge í Belgíu.

Ţađ er okkur hjá KA ţví mikiđ ánćgjuefni ađ halda Arnari áfram innan okkar rađa og hlökkum viđ svo sannarlega til ađ halda ţví samstarfi áfram á nćsta tímabili.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband