Ásgeir framlengir út 2025!

Fótbolti

Ásgeir Sigurgeirsson fyrirliði KA í knattspyrnu skrifaði í dag undir nýjan samning við félagið sem gildir út árið 2025. Þetta eru stórkostlegar fréttir enda Geiri algjör lykilmaður í okkar liði og stórkostlegur karakter sem hefur átt mikinn þátt í uppgangi KA-liðsins undanfarin ár.

Ásgeir er 25 ára gamall framherji sem kom fyrst á láni til KA frá norska liðinu Stabæk sumarið 2016. Hann sló heldur betur í gegn er KA tryggði sér loksins sæti í efstu deild með sannfærandi sigri í Inkasso deildinni. Ásgeir skoraði 8 mörk það sumarið og þar á meðal sigurmarkið gegn Selfyssingum sem tryggði úrvalsdeildarsætið.

Í kjölfarið gekk Geiri endanlega til liðs við KA og hefur nú leikið 127 leiki í deild og bikar fyrir félagið og gert í þeim 33 mörk. Eins og fleiri leikmenn KA kemur Geiri frá Húsavík þar sem hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir Völsung sumarið 2012 aðeins 15 ára gamall. Þaðan gekk hann í raðir norska liðsins Stabæk þar sem hann dvaldi í tvö ár. Geiri er því þrátt fyrir ungan aldur kominn með ansi mikla reynslu í meistaraflokki.

Ekki nóg með að vera gríðarlega öflugur á vellinum þá er Geiri til fyrirmyndar utan vallar og tekur virkan þátt í starfi félagsins og alveg ljóst að það eru gríðarlega jákvæðar fréttir fyrir okkur KA-menn að njóta áfram krafta hans næstu árin.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband