Blakdeild semur við André Collin

Blak
Blakdeild semur við André Collin
Bjóðum André velkominn í KA!

Karlalið KA hefur fengið góðan liðsstyrk en André Collin hefur skrifað undir samning hjá félaginu og mun bæði leika með liðinu sem og koma að þjálfun karla- og kvennaliðs KA. Collin sem er 41 árs og 1,94 metrar á hæð er reynslumikill leikmaður og hefur verið gríðarlega sigursæll bæði á Spáni og í Brasilíu.

Undanfarin ár hefur hann farið mikinn í þjálfun og hefur unnið alla helstu titlana á Spáni. Það er ekki nokkur spurning að koma hans til KA mun hjálpa okkur að gera gott starf okkar enn betra auk þess sem hann mun láta til sín taka á vellinum.

Við bjóðum Collin velkominn í KA og verður gaman að fylgjast með hans starfi á komandi vetri.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband