Breytingar í aðalstjórn KA

Almennt

Kæru félagar, mér þykir það miður að tilkynna um, að vegna utanaðkomandi aðstæðna verð ég að stíga til hliðar sem formaður KA frá og með deginum í dag. Ég hef farið þess á leit við varaformann okkar Eirík S. Jóhannsson að hann taki við stjórn félagsins fram að aðalfundi KA, en hann er fyrirhugaður 6. apríl næstkomandi. Að auki liggur þá fyrir að varamaður okkar í aðalstjórn, Vignir Már Þormóðsson, taki sæti mitt í stjórn félagsins. Að sjálfsögðu verð ég þeim báðum sem og stjórninni allri innan handar með yfirfærslu á þeim verkefnum sem ég hef haft á minni könnu.

Á undanförnum vikum hefur það orðið ljóst að því miður fer það ekki saman að veita stóru félagi eins og KA er forystu, jafnvel þótt um sjálfboðastarf sé að ræða, á sama tíma sem maki minn er kjörinn fulltrúi í sveitastjórn. Ég tel það farsælast fyrir KA, mig sjálfan og fjölskyldu mína, að ég stígi til hliðar sem formaður KA á þessum tímapunkti. Sem fyrr mun ég vinna ötullega að framgangi okkar ástkæra félags en á öðrum vettvangi.

Kveðja góð, takk fyrir mig
Áfram KA
Ingvar Gíslason


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband