Ekki missa af Þorrablóti KA 16. feb!

Almennt

Það styttist í Þorrablót KA sem verður haldið í KA-Heimilinu laugardaginn 16. febrúar næstkomandi. Enn er hægt að panta miða en aðeins kostar 6.000 krónur á Þorrablótið. Ýmis dagskrá verður um kvöldið en meðal annars munu þeir Stebbi Jak og Andri Ívars úr föstudagslögunum halda uppi stuðinu með sínu prógrami.

Athugið að aðgangur að Þorrablótinu er innifalinn í gjaldi Bakvarða KA en þeir þurfa engu að síður að hafa samband til að tryggja sér miða.

Ekki missa af stórkostlegri skemmtun og tryggðu þér miða í netfanginu agust@ka.is eða í síma 849-3159. Síðustu ár hefur orðið uppselt á blótið og því um að gera að tryggja sér miða sem fyrst, hlökkum til að sjá ykkur!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband