Engar æfingar í samkomubanninu

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak | Tennis og badminton

Engar æfingar verða hjá yngriflokkum KA sem og hjá öðrum félögum á meðan samkomubanni stendur á en þetta varð ljóst í dag með tilkynningu frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Við birtum hér yfirlýsingu ÍSÍ og hvetjum ykkur öll að sjálfsögðu til að fara áfram varlega.

Með ákvörðun heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi og samkomum var fyrst og fremst komið á tilteknum viðmiðum í þágu opinberra sóttvarna en nánari útfærsla falin menntamálayfirvöldum í tilviki skólastarfs eða viðkomandi rekstraraðilum eða skipuleggjendum tilviki takmarkana á samkomur. Eftir samráð Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og mennta- og menningarmálaráðuneytisins síðastliðna viku hefur komið í ljós að framkvæmd þessara ráðstafana hefur reynst flókin.

Af þeim sökum og að virtum þeim sjónarmiðum og skýringum sem fram hafa komið af hálfu ÍSÍ og ýmissa annarra samtaka sem sinna íþrótta- og æskulýðsstarfi mælast heilbrigðisráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneyti til þess að hlé verði gert á öllu íþrótta- og æskulýðsstarfi barna og ungmenna, sem felur í sér blöndun hópa, nálægð við aðra og snertingu, þar til takmörkun skólastarfs lýkur. Eru skipuleggjendur þess hvattir til að halda uppi félagsstarfi með því að nýta sér tæknina til að halda utan um sína hópa og vera í sambandi við iðkendur og hvetja þá til virkni og hreyfingar eftir því sem við á.

Enn fremur er þeim tilmælum beint til ábyrgðaraðila og skipuleggjenda annars íþrótta- og æskulýðsstarfs að með sama hætti verði gert hlé á starfi sem felur í sér snertingu eða nálægð milli iðkenda sem er minni en 2 metrar, í samræmi við þær meginreglur sem fram koma í auglýsingu um takmörkun á samkomum og á meðan þær takmarkanir eru í gildi.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband