Lumar þú á dýnu?

Almennt

Miðvikudaginn 20. mars kemur stór hópur í KA-Heimilið að gista og verður fram yfir laugardag. KA á töluvert af dýnum fyrir hópa fyrir gistingar en hópurinn sem kemur í næstu viku er það stór að okkur vantar þó nokkuð af dýnum svo allir geti gist hjá okkur.

Ef þú átt dýnu eða dýnur sem þú getur lánað okkur þessa fjóra daga þá væri það gríðarlega vel þegið. Hægt er að koma með dýnurnar upp í KA-Heimili eða hafa samband við Ágúst Stefánsson í netfanginu agust@ka.is ef einhverjar spurningar eru.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband