Þorrablót KA haldið 16. febrúar

Almennt

Það verður heldur betur líf og fjör í KA-Heimilinu laugardaginn 16. febrúar þegar Þorrablót KA fer fram. Þorrablót félagsins hafa vakið gríðarlega lukku undanfarin ár og lofum við skemmtilegri dagskrá og miklu fjöri eins og alltaf.

Við munum kynna dagskrá kvöldsins er nær dregur en meðal annars munu þeir Stebbi Jak og Andri Ívars úr föstudagslögunum halda uppi stuðinu með sínu prógrami.

Miðaverð er einungis 6.000 krónur og er hægt að panta miða í netfanginu agust@ka.is eða í síma 849-3159. Síðustu ár hefur orðið uppselt á blótið og því um að gera að tryggja sér miða sem fyrst, hlökkum til að sjá ykkur!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband