Tilnefningar til Böggubikarsins 2019

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak
Tilnefningar til Böggubikarsins 2019
Verđlaunahafar síđasta árs (mynd: Ţórir Tryggva)

Átta ungir iđkendur hafa veriđ tilnefndir til Böggubikarsins fyrir áriđ 2019. Böggubikarinn er farandbikar sem veittur er einstaklingum, pilti og stúlku, á aldrinum 16-19 ára sem ţykja efnileg í sinni grein en ekki síđur mjög sterk félagslega. Einstaklingum sem eru til fyrirmyndar á ćfingum og í keppnum og eru bćđi jákvćđ og hvetjandi.

Böggubikarinn er veittur í minningu Sigurbjargar Níelsdóttur, Böggu, sem fćdd var ţann 16. júlí 1958 og lést ţann 25. september 2011. Bróđir Böggu, Gunnar Níelsson, er verndari verđlaunanna.

Á síđasta ári fengu ţau Dagur Gautason (handknattleik) og Karen María Sigurgeirsdóttir (knattspyrna) verđlaunin eftirsóttu.

Tilnefndir í ár eru eftirfarandi

Arnór Ísak Haddsson, handknattleikur

Ţrátt fyrir ungan aldur er Arnór kominn inn í ćfingahópinn hjá meistaraflokki karla. Ţá hefur Arnór spilađ geysilega vel fyrir ungmennaliđ KA í Grill-66 deildinni og hefur skorađ í 10 leikjum 46 mörk. Ađ auki spilar hann í 3. flokki félagsins og er ţar algjör lykilmađur. Ţá er Arnór mikill félagsmađur og er ávallt tilbúinn ađ ađstođa viđ starf handknattleiksdeildar.

Arnór hefur átt fast sćti í unglingalandsliđum Íslands og í sumar fór hann á ásamt félögum hans í U-17 ára landsliđinu á EM sem haldiđ var í Aserbaídsjan og enduđu ţar í 4 sćti. Arnór er gríđarlega ósérhlífinn og fer fram međ baráttu og drifkrafti. Á ţessu tímabili hefur hann tekiđ gríđarlegum framförum og bćtt sig mikiđ.

Birgir Baldvinsson, knattspyrna

Birgir er fyrirliđi 2. flokks KA sem leikur í A-deild Íslandsmótsins auk ţess sem hann er í ćfingahóp meistaraflokks. Birgir er einn besti fyrirliđi sem hefur veriđ í yngriflokkum KA ţar sem hann nćr afar vel til allra sem eru međ honum í liđi. Hann hefur ţann eiginleika ađ gera ađra leikmenn á vellinum betri međ nćrveru sinni. Hann er ţví vel af tilnefningunni kominn enda topp KA-drengur.

Gísli Marteinn Baldvinsson, blak

Gísli Marteinn er 17 ára Siglfirđingur sem hefur ćft međ meistaraflokki KA í blaki undanfarin tvö tímabil. Gísli er efnilegur blakari og hefur undanfariđ fengiđ ađ spreyta sig talsvert međ meistaraflokksliđi KA. Gísli fór í haust í landsliđsverkefni međ U19 ára landsliđi Íslands til Finnlands ţar sem hann spilađi alla leiki liđsins á alţjóđlegu móti Norđur-Evrópuţjóđa, NEVZA.

Gísli er ekki eingöngu öflugur leikmađur en hann er einnig ákaflega mikilvćgur utan vallar, ţar sem hann er frábćr fulltrúi yngri leikmanna liđsins og stendur sig afbragđsvel í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur.

Gylfi Rúnar Edduson, júdó

Gylfi Rúnar er 16 ára og ćfir međ fullorđinsflokki júdódeildar KA. Hann hefur veriđ ađ ćfa síđan hann var lítill drengur og hefur náđ mjög góđum árangri á árinu sem og síđustu ár. Hann hefur međal annars veriđ valinn í landsliđiđ tvisvar á ţessu ári og keppti til ađ mynda á Norđurlandamótinu ţar sem honum tókst ađ vinna tvćr glímur og hafna í sjöunda sćti. Á Budo Nord, sem er eitt sterkasta unglingamót Norđurlandanna, gerđi hann ţađ sama og vann tvćr glímur Ađ auki hefur hann veriđ ađ sanka ađ sér verđlaunum hér heima hann tók sem dćmi tvö gull á afmćlismóti JSÍ bćđi í U18 og U21 árs.

Gylfi er virkilega duglegur ađ ćfa og er ţví frábćr fyrirmynd fyrir yngri og eldri iđkendur júdódeildarinnar. Vegna vinnusemi sinnar ţá má segja međ vissu ađ hann mun ná mjög langt innan vallar sem utan.

Hekla Dís Pálsdóttir, júdó

Hekla Dís hefur veriđ ađ ćfa júdó í ţó nokkur ár en í dag er hún orđin 18 ára og hefur hún unniđ sér inn brúna beltiđ. Hekla Dís er fyrirmyndar íţróttanemandi sem leggur sig ávallt fram á ćfingum. Hún er dugleg ađ gefa af sér til yngri iđkenda og er frábćr fyrirmynd innan sem utan vallar.

Undanfarin ár hefur hún veriđ ađ standa sig mjög vel á mótum en á árinu var hún valin í landsliđsferđ til Svíţjóđar og stóđ sig međ prýđi en hún kom heim međ tvö brons. Hún var einnig íslandsmeistari í U21 árs. Jákvćđni hennar og drifkraftur mun koma henni langt áfram í júdóinu og í lífinu.

Jóna Margrét Arnarsdóttir, blak

Jóna Margrét er 16 ára uppalin KA kona sem hefur, ţrátt fyrir ungan aldur, ćft međ meistaraflokki KA í blaki allt frá árinu 2016, ţá 12 ára gömul. Hún hefur átt fast sćti í liđi KA undanfarin tvö ár. Jóna var í liđi KA sem vann alla mögulega titla síđasta tímabils, en ţá varđ liđiđ deildar-, bikar- og Íslandsmeistari ásamt ţví ađ vinna titilinn Meistarar meistaranna í upphafi núverandi tímabils. Auk ţess keppti liđ KA á alţjóđlegu móti félagsliđa Norđur-Evrópu, NEVZA, í Svíţjóđ, ţar sem att var kappi viđ sterkustu félagsliđ Norđur-Evrópu.

Jóna fór til Danmerkur í haust međ U-17 ára landsliđi Íslands og spilađi ţar alla leiki liđsins á alţjóđlegu móti Norđur-Evrópuţjóđa, NEVZA. Ásamt ţví hefur Jóna ćft međ A-landsliđi Íslands og var á dögunum valin í lokahóp liđsins sem fer á Novotel Cup í Lúxemborg í janúar. Ţađ er deginum ljósara ađ Jóna á framtíđina fyrir sér á blakvellinum, en hún er ekki eingöngu sterkur leikmađur, heldur gríđarlega mikilvćg fyrir liđsheildina.

Karen María Sigurgeirsdóttir, knattspyrna

Karen María tók ţátt í öllum deildarleikjum Ţór/KA sem endađi í 4. sćti í Pepsi Max deildarinnar á nýliđnu sumari og komst í undanúrslit í Borgunarbikarnum. Ţá vann hún sér inn sćti í U-19 ára landsliđi Íslands ţar sem hún og stöllur hennar komust áfram úr undanriđli EM. Hún lék 7 landsleiki međ liđinu og skorađi tvö mörk. Áriđ var ţví mjög flott hjá ţessum duglega og árćđna leikmanni. 

Rakel Sara Elvarsdóttir, handknattleikur

Rakel Sara er ein af efnilegustu hornamönnum Íslands í dag. Hennar helsti styrkur er gríđarlega mikill hrađi og sprengikraftur, er frábćr í hrađupphlaupum og góđur varnarmađur. Hún hefur tekiđ miklum framförum á árinu en ţrátt fyrir ungan aldur er hún fastamađur í meistaraflokksliđi KA/Ţórs og hefur skorađ í 24 mörk á núverandi tímabili í Olísdeildinni.

Í sumar fór hún međ U-17 ára landsliđinu á Evrópumót ţar sem hún stóđ sig frábćrlega og var verđlaunuđ međ sćti í úrvalsliđi mótsins. Rakel er gríđarlega samviskusöm, ćfir mikiđ og er međ skýr markmiđ sem hún vinnur eftir. Ţá er hún einnig góđur liđsmađur og flottur félagsmađur fyrir félagiđ okkar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband