Viljayfirlýsing um uppbyggingu KA-svæðis

Almennt
Viljayfirlýsing um uppbyggingu KA-svæðis
Ásthildur og Ingvar við undirritunina

Akureyrarbær og Knattspyrnufélag Akureyrar skrifuðu í gær undir viljayfirlýsingu er snýr að uppbyggingu íþróttamannvirkja á svæði KA við Dalsbraut. Það er ljóst að þetta eru gríðarlega jákvæð tíðindi fyrir félagið og stórt skref í átt að þeirri framtíðarstefnu sem félagið hefur unnið að undanfarin ár.

Ingvar Már Gíslason formaður KA skrifaði undir yfirlýsinguna fyrir hönd KA og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrar skrifaði undir fyrir hönd bæjarins. Undirritunin er hluti af afmælisþætti KA sem má sjá hér fyrir neðan.

Í viljayfirlýsingunni felst að KA er heimilt að hefja vinnu við nýtt deiliskipulag á félagssvæði sínu við Dalsbraut. Horft verður til framtíðar við skipulagsvinnuna meðal annars með byggingu gervigrasvallar, áhorfendastúku og félagsaðstöðu. Þá mun KA gæta þess að skerða ekki um og uppbyggingarmöguleika félagsins til framtíðar.

Fyrirhugað er að þegar deiliskipulag liggur fyrir og það samþykkt af bæjarstjórn að gerður verði samningur við Akureyrarbæ um fyrirhugaða uppbyggingu þar sem fram mun koma nákvæm áætlun um verkefnið, stofnkostnaður, forgangsröðun, útfærsla og tímaætlun.

Við undirritunina vildi Ásthildur óska KA-mönnum til hamingju með daginn. "Ég held að við getum öll verið ánægð með þessa viljayfirlýsingu sem hér er undirrituð. Ég held að það geti allir verið sammála hér um það að það sé risaskref fyrir félagsstarfið hjá KA-mönnum að geta farið í þetta verkefni. Þannig að ég óska ykkur til hamingju og hlakka til þessa samstarfs okkar á milli og hlakka til þegar við getum séð glæsilega uppbyggingu á þessu svæði hér verða að veruleika."


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband