Birgir Baldvins með samning við KA út 2021

Fótbolti

Birgir Baldvinsson framlengdi í dag samning sinn við Knattspyrnudeild KA út sumarið 2021. Þetta eru miklar gleðifregnir enda Birgir öflugur leikmaður sem varð 18 ára fyrr á árinu. Þrátt fyrir ungan aldur var hann 8 sinnum í leikmannahópi KA á nýliðnu sumri.

Auk þess fór hann fyrir liði 2. flokks sem í sumar fór alla leið í undanúrslit Bikarkeppninnar og festi sig enn betur í sessi sem lið í efstu deild. Við óskum bæði Birgi og Knattspyrnudeild KA til hamingju með samninginn og væntum mikils af Birgi í framtíðinni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband