Kemst Þór/KA í bikarúrslitaleikinn?

Fótbolti
Kemst Þór/KA í bikarúrslitaleikinn?
Gríðarlega mikið undir á morgun (mynd: Sævar Geir)

Þór/KA mætir KR á Meistaravöllum á morgun, laugardag, í undanúrslitum Mjólkurbikarsins kl. 14:00. Stelpurnar hafa gert gríðarlega vel að komast alla leiðina í undanúrslitin en í síðustu umferð slógu þær út topplið Vals eftir svakalegum leik með sigurmarki á lokamínútunum.

Þór/KA lék til úrslita í Bikarnum sumarið 2013 og mætti þá Breiðablik en sá leikur tapaðist 2-1 en mark okkar liðs gerði Katrín Ásbjörnsdóttir. Þetta er eina skiptið sem Þór/KA hefur komist í úrslitaleikinn og ljóst að stelpurnar munu leggja allt í sölurnar til að komast í stærsta leik sumarsins.

Bikarkeppnin er líklega eini bikarinn sem liðið á möguleika á í sumar en í Pepsi Max deildinni eru Valur og Breiðablik með 11 stiga forskot á toppi deildarinnar og erfitt að sjá bæði lið missa flugið. Þau eru hinsvegar bæði dottin út í bikarnum.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta á þennan stórleik á morgun og styðja stelpurnar áfram í sjálfan bikarúrslitaleikinn, það má búast við hörkuleik en í síðustu viðureign liðanna skildu liðin jöfn 2-2 á Þórsvelli.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband