Haukasigur eftir hörkuleik

Handbolti
Haukasigur eftir hörkuleik
Flottur leikur ţrátt fyrir tapiđ (Ţórir Tryggva)

KA/Ţór tók á móti Haukum í síđasta heimaleik liđsins fyrir jólafrí í Olís deild kvenna. Stelpurnar komu mörgum á óvart er ţćr unnu 23-24 sigur í fyrri viđureign liđanna og var ljóst ađ liđ gestanna hugđi á hefndir. Haukar voru á miklu skriđi fyrir leikinn og höfđu unniđ síđustu fjóra leiki sína.

Liđin skiptust á ađ leiđa leikinn í upphafi og stefndi í gríđarlega baráttu um stigin tvö enda klárt ađ mikilvćg stig vćru í húfi. Deildin er ađ skiptast og bćđi liđ ţurftu klárlega á sigri ađ halda til ađ halda í viđ toppbaráttuna.

Mikill hrađi einkenndi leikinn í upphafi og var stađan 5-5 eftir fyrstu tíu mínútur leiksins. Ţá kom hinsvegar sterkur kafli hjá gestunum sem komust í 5-9 og síđar í 7-12. Ţarna virtust gestirnir ćtla ađ keyra yfir okkar liđ enda refsuđu ţćr grimmt fyrir hver mistök og keyrđu hratt í bakiđ á okkar liđi.

En stelpurnar náđu áttum sínum og lokuđu vörninni, í kjölfariđ skoruđu Haukar ekki mark í rúmar níu mínútur og KA/Ţór minnkađi muninn í 11-12 og mikil stemning í KA-Heimilinu. Ódýrt mark yfir allan völlinn í autt mark kom gestunum aftur á sporiđ og hálfleikstölur voru 13-15.

Tímalína fyrri hálfleiks

Spennan fór aldrei úr síđari hálfleiknum ţrátt fyrir ađ Haukaliđiđ leiddi lengst af međ fjórum mörkum. Okkar liđ náđi ađ minnka muninn í tvö mörk er tíu mínútur lifđu leiks og úr varđ hin mesta skemmtun á lokamínútunum.

Á lokamínútunni sjálfri var munurinn kominn niđur í eitt mark, 27-28, og enn tími til ađ ná boltanum og skora jöfnunarmarkiđ. Ţađ leit út fyrir ađ stelpunum hefđi tekist ađ stela boltanum en hann datt á endanum niđur í horniđ og ţađ nýtti Haukaliđiđ sér og klárađi leikinn. Lokatölur 27-29 og tap stađreynd.

Tímalína seinni hálfleiks

Í heildina litiđ var sigur gestanna sanngjarn en frammistađa okkar liđs var ţó mjög jákvćđ. Munurinn á liđunum var ađallega sá ađ Haukarnir gerđu fćrri mistök og voru betri í ţví ađ keyra hratt og fá ţannig auđveld mörk.

Framundan er útileikur gegn ógnarsterku liđi ÍBV á föstudaginn og svo jólafrí. Ţađ verđur gaman ađ sjá hvađ stelpurnar ná ađ gera í Eyjum enda hefur liđiđ allt ađ vinna í ţeim leik. Byrjunin á tímabilinu hefur veriđ mjög flott og ekki ađ sjá ađ ţađ sé nýliđaskrekkur í hópnum nú ţegar deildin er ađ verđa hálfnuđ.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband