KA-1 sigrađi 5. flokksmót helgarinnar

Handbolti
KA-1 sigrađi 5. flokksmót helgarinnar
KA1 međ gullverđlaunin sín!

Önnur túrnering vetrarins fór fram um helgina hjá yngra ári 5. flokks karla og kvenna í handbolta. Hjá strákunum senti KA tvö liđ til leiks en hjá stelpunum senti KA/Ţór eitt liđ til keppni. Leikiđ var í Kópavogi og var mikil spenna hjá keppendum okkar fyrir helginni.

Hjá strákunum spilađi KA1 í 1. deild en KA2 í 2. deild en alls er keppt í fjórum deildum í heildina. Ţađ var ţví ljóst ađ framundan vćri gríđarlega erfitt mót og ţyrftu strákarnir ađ vera einbeittir ţegar fyrsti leikur var flautađur á kl. 8:00 í morgun.

Strax frá fyrstu mínútu gáfu strákarnir til kynna ađ ţeir vćru ekki bara mćttir til ađ vera međ heldur ćtluđu sér eitthvađ meira. KA2 riđu á vađiđ og byrjuđu á ađ gera jafntefli viđ ógnarsterkt liđ FH. KA1 fylgdu svo í kjölfariđ og unnu glćsilegan 14-7 sigur á liđi KR. Draumabyrjun á mótinu. Síđan skiptust liđin á ađ eiga góđa leiki, sigrarnir féllu KA megin hjá liđi 1 en liđ 2 náđi ekki ađ landa sigri ţrátt fyrir flotta spilamennsku.

Ţjálfarar strákanna eru ţeir Stefán Árnason, Dađi Jónsson og Arnór Ísak Haddsson.


Strákarnir í KA2 sýndu flotta frammistöđu í sínum leikjum

Seinasta leik mótsins spiluđu KA1 á móti Aftureldingu, hreinn úrslitaleikur um sigur í efstu deild. Ţess má geta ađ Afturelding hefur veriđ sterkasta liđiđ í ţessum aldursflokki undanfarin 3 ár og verkefniđ ţví stórt. Leikurinn byrjađi vel fyrir okkar menn og snemma fyrri hálfleiks var stađan orđin 4-1 KA í vil. Ţá hrökk Afturelding í gang og jafnađi leikinn, stađan 6-6 í hálfleik og leikurinn í járnum. Í byrjun seinni hálfleiks gekk ekkert upp hjá KA liđinu sóknarlega en á sama tíma gekk allt upp hjá Aftureldingu og var stađan orđin 9-7 ţegar sjö mínútur lifđu leiks.

Ţá skelltu KA menn í lás jöfnuđu leikinn í 9-9 ţegar ein mínúta var eftir. KA skoruđu svo sitt tíunda mark ţegar 20 sekúndur voru eftir og fórnuđu lífi og limum til ţess ađ verja markiđ út tímann og sigur stađreynd. Gríđarlega flott mót hjá strákunum, bćđi liđ spiluđu vel og sýndu miklar framfarir. Ţađ er nokkuđ ljóst ađ framtíđin er björt hjá strákunum!


Stelpurnar stóđu fyrir sínu um helgina

Stelpurnar léku í A-riđli 2. deildar ţar sem ţćr léku gegn FH, Fram og Stjörnunni. Fyrsti leikur var gegn Stjörnunni sem er međ hörkuliđ og á endanum tapađist leikurinn 6-13. En stelpurnar sýndu frábćran karakter og komu mjög sterkar til leiks gegn FH í nćsta leik sem vannst 15-10.

Í lokaleik riđilsins vann liđiđ svo 11-5 sigur á Fram sem tryggđi stelpunum hreinan úrslitaleik viđ Stjörnuna um sćti í 1. deild á nćsta móti. Ţrátt fyrir góđan leik ţá reyndust Garđbćingar of sterkir og ţćr unnu ţví annan sigur á okkar liđi. 2. sćtiđ varđ raunin sem er mjög flottur árangur og sýndu stelpurnar miklar framfarir á mótinu.

Ţjálfarar stelpnanna eru ţćr Ásdís Guđmundsdóttir og Kristín Jóhannsdóttir.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband