KA hyllti ţá Dóra, Heimi og Sverre

Handbolti
KA hyllti ţá Dóra, Heimi og Sverre
Ţrír frábćrir KA kappar

Fyrir leik KA og FH um helgina voru ţrír af bestu sonum handboltans í KA hylltir. Heimir Örn Árnason og Sverre Andreas Jakobsson léku lokaleik sinn sem leikmenn KA og ţá var Halldór Jóhann Sigfússon ţjálfari FH sćmdur silfurmerki KA.

Haddur Júlíus Stefánsson formađur handknattleiksdeildar veitti ţeim Heimi og Sverre smá ţakklćtisvott auk ţess sem ţeir voru vel hylltir af stuđningsmönnum sem fjölmenntu í KA-Heimiliđ.

Heimir Örn Árnason hóf meistaraflokksferil sinn tímabiliđ 1995-1996 međ sterku liđi KA en hann varđ fimm sinnum Íslandsmeistari međ yngri flokkum KA. Hann varđ tvisvar sinnum Íslandsmeistari međ meistaraflokki, einu sinni Bikarmeistari og ţrisvar Deildarmeistari. Ţađ vćri hćgt ađ halda langa tölu um frábćran feril Heimis, en ţá fćri leikurinn aldrei í gang fyrr en ađ ganga níu. Heimir spilađi á sínum glćsta ferli 23 A-landsleiki og međal annars á Evrópumótinu 2006. Hann vann til fjölda verđlauna međ öđrum félögum og einstaklingsverđlaunin eru ótalmörg.

Heimir hefur á efri árum komiđ ađ ţjálfun, bćđi yngri flokka og meistaraflokka međ góđum árangri. Ţađ verđur mikil eftirsjá af Heimi af handboltavellinum, ţar sem leikgleđi og barátta hafa einkennt hans stíl frá ţví ađ elstu menn muna. Viđ vonum svo sannarlega ađ viđ fáum áfram ađ njóta ţjónustu hans utan vallar.

Sverre Andreas Jakobsson varđ bikarmeistari međ KA árin 1995 og 1996, Íslandsmeistari 1997 og Deildarmeistari 1996 og 1998. Ţess utan ţjálfađi Sverre yngri flokka KA á sínum yngri árum. Sverre er KA-mađur í húđ og hár. Hann lék 182 landsleiki fyrir Íslands hönd og náđi ţeim frábćra árangri ađ fá silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og brons á EM í Austurríki áriđ 2010.

Sverre sneri aftur til Akureyrar eftir frábćra tíma í Ţýskalandi og hóf ađ spila auk ţess ađ stýra sameiginlegu liđi Akureyrar áđur en hann kom inn í ţjálfarateymi KA nú um áramótin. KA-menn eru gríđarlega stoltir af afrekum Sverre og ţakka honum fyrir frábćra ţjónustu innan vallar međ von um áframhaldandi ţjónustu utan vallar um ókomin ár hjá félaginu.

Ingvar Már Gíslason, formađur KA, afhenti svo Halldóri Jóhanni silfurmerki KA.

Halldór Jóhann Sigfússon lék sinn fyrsta meistaraflokks leik í handbolta rétt tćplega 16 ára áriđ 1994. Hann varđ fimm sinnum Íslandsmeistari međ yngri flokkum KA og tvisvar sinnum Íslandsmeistari međ meistaraflokki, tvisvar Bikarmeistari auk ţess ađ verđa Deildarmeistari ţrívegis. Ţá varđ Dóri markakóngur Íslandsmótsins 2004-2005.

Segja má ađ KA-Heimiliđ hafi veriđ hans annađ heimili ţví ef hann var ekki á ćfingu eđa aukaćfingu var hann ađ hjálpa starfsfólki KA-Heimilisins viđ ađ halda uppi röđ og reglu. Halldór hóf ţjálfaraferil sinn hjá KA, ţegar hann ţjálfađi yngri flokka viđ góđan orđstír og er ţađ vonandi sá grunnur sem hann býr ađ í dag.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband