Martha og Áki valin best á lokahófi handboltans

Handbolti
Martha og Áki valin best á lokahófi handboltans
Martha og Allan Norðberg með Hadd formanni hkd.

Lokahóf handknattleiksdeildar KA var haldið með pompi og prakt í gær þar sem frábærum vetri hjá karlaliði KA og kvennaliði KA/Þórs var fagnað vel og innilega. Martha Hermannsdóttir og Áki Egilsnes voru valin bestu leikmenn liðanna í vetur en bæði áttu þau frábært tímabil.

Bestu ungu leikmenn liðanna voru valin þau Anna Þyrí Halldórsdóttir og Dagur Gautason. Bestu liðsfélagarnir voru svo þau Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir og Andri Snær Stefánsson. Þá völdu Schiötharar, stuðningsmannasveit KA, þau Mörthu og Áka bestu leikmenn tímabilsins.

Handknattleiksdeild KA vill þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóg í vetur enda þarf ansi mikið að ganga upp bæði innan sem utan vallar til að ná jafn góðum árangri og uppskera vetrarins var. Hlökkum til að halda samstarfinu áfram næsta vetur!


Verðlaunahafar karla, Andri Snær Stefánsson, Allan Norðberg sem tók við verðlaununum fyrir Áka Egilsnes og Svavar Sigmundsson sem tók við verðlaununum fyrir hönd Dags Gautasonar


Verðlaunahafar kvenna, Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir, Martha Hermannsdóttir og Anna Þyrí Halldórsdóttir


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband