Elfar Árni framlengir út 2022!

Fótbolti

Elfar Árni Aðalsteinsson skrifaði í dag undir nýjan samning og er hann nú samningsbundinn Knattspyrnudeild KA út sumarið 2022. Þetta eru gríðarlega jákvæðar fréttir en Elfar Árni er markahæsti leikmaður KA í efstu deild og hefur verið algjör lykilmaður í uppbyggingu KA frá komu sinni sumarið 2015.

Elfar sem varð þrítugur í ár sleit krossband á undirbúningstímabilinu og hefur því ekki leikið með KA liðinu í sumar en það er ekki nokkur spurning að hann mun koma tvíefldur til baka. Alls hefur hann leikið 113 leiki fyrir KA í deild og bikar þar sem hann hefur gert 52 mörk. Þar áður lék hann með Breiðablik og uppeldisfélagi sínu Völsung.

Við óskum Elfari og Knattspyrnudeild til hamingju með samninginn og hlökkum til að sjá Elfar snúa aftur á völlinn og halda áfram að raða inn mörkum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband