Fimm fulltrúar KA/Ţórs í Tékklandi

Handbolti
Fimm fulltrúar KA/Ţórs í Tékklandi
Lydía, Sif, Kristín og Bergrós eru í U17

Stúlknalandsliđ Íslands í handbolta skipuđ leikmönnum U19 og U17 léku bćđi tvo vináttulandsleiki í Tékklandi um helgina en bćđi liđ undirbúa sig nú fyrir EM í sumar. U19 leikur á EM í Rúmeníu og U17 leikur á EM í Svartfjallalandi.

KA/Ţór átti hvorki meira né minna en fimm fulltrúa í hópunum en Hildur Lilja Jónsdóttir lék međ U19 og í U17 léku ţćr Bergrós Ásta Guđmundsdóttir, Kristín Birta Líndal Gunnarsdóttir, Lydía Gunnţórsdóttir og Sif Hallgrímsdóttir.

Hildur Lilja hefur veriđ fastamađur í landsliđshópnum undanfarin ár en íslenska liđiđ tapađi fyrri leik sínum viđ Tékka á föstudeginum 26-25 eftir hörkuleik en Tékkar leiddu 16-13 í hálfleik. Í síđari leiknum gerđi Hildur Lilja tvö mörk fyrir íslenska liđiđ en lokatölur í ţeim leik voru 24-17 Tékkum ívil eftir ađ stađan hafđi veriđ 12-7 í hálfleik.

U17 ára liđiđ átti í erfiđleikum í upphafi fyrri leiksins en stelpurnar hafa ekki leikiđ marga leiki saman og ţví eđlilegt ađ ţađ taki smá tíma ađ slípa leik liđsins saman. Stađan var 18-5 í hálfleik en stelpurnar sýndu mun betri leik í ţeim síđari og voru lokatölur 29-18. Lydía gerđi 5 mörk í leiknum og Bergrós eitt auk ţess sem Sif varđi 9 skot í markinu.

Í síđari leiknum lentu stelpurnar aftur í erfiđum kafla í byrjun leiks og var stađan 18-6 í hálfleik. Aftur voru batamerki á liđinu í síđari hálfleik og voru lokatölur 28-14. Lydía gerđi 3 mörk í leiknum.

Mikilvćg reynsla hjá báđum liđum og verđur spennandi ađ sjá framgöngu liđanna í undirbúningi fyrir EM í sumar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband