Viðburður

Almennt - 12:00

Föstudagsframsaga Stebbi og Jonni

Föstudagsframsagan hefur slegið í gegn hjá okkur og er röðin nú komin að þeim Stefáni Árnasyni og Jónatan Magnússyni þjálfarapari KA í handbolta. Þeir félagar munu fara vel yfir stöðuna hjá liðinu og það sem framundan er í hádeginu á föstudaginn.

Vídalín veitingar munu að sjálfsögðu bjóða upp á veislumat en að þessu sinni verða gómsætar kótilettur ásamt meðlæti á aðeins 2.200 krónur.

Maturinn hefst klukkan 12:00 en áætlað er að kynning þeirra félaga hefjist klukkan 12:15 og taki um hálftíma. Fyrsti heimaleikur KA liðsins eftir jóla- og EM frí er á laugardaginn er HK kemur í heimsókn. Það er um að gera að mæta í KA-Heimilið og gæða sér á dýrindis svínalundum og kynna sér stöðuna á KA liðinu!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband