Frábćr 0-3 útisigur lyfti KA á toppinn!

Fótbolti

KA gerđi sér lítiđ fyrir og sótti frábćran 0-3 sigur upp á Skipaskaga í 6. umferđ Bestu deildar karla í dag og stórkostleg byrjun á fótboltasumrinu heldur ţví áfram. KA er nú međ 16 stig af 18 mögulegum og situr á toppi deildarinnar en Breiđablik á leik til góđa ţar fyrir aftan.

KA hefur haft gott tak á Skagamönnum ađ undanförnu og vann međal annars 0-2 sigur á Akranesi í fyrra og fengu strákarnir draumabyrjun á leiknum er Daníel Hafsteinsson ţrumađi boltanum glćsilega upp í skeytin rétt utan teigs strax á 12. mínútu og stađan ţví orđin 0-1.

Ekki gerđist margt marktćkt í fyrri hálfleiknum og áttu bćđi liđ í smá brasi međ ađstćđurnar á vellinum enda töluverđur vindur auk ţess sem grasiđ er ađ koma upp eins og gengur og gerist á ţessum árstíma.

Heimamenn komu af krafti inn í síđari hálfleikinn og reyndu hvađ ţeir gátu til ađ jafna metin en KA liđiđ er gríđarlega agađ og skipulagt og gaf fá fćri á sér. Elfar Árni Ađalsteinsson tvöfaldađi svo forystuna á 53. mínútu međ frábćrri baráttu ţegar hann náđi stungusendingu og klárađi af sinni stöku snilld.

Markiđ kom gegn gangi leiksins en skömmu síđar fengu Skagamenn dauđafćri á ađ koma sér aftur inn í leikinn er ţeir fengu vítaspyrnu. Steinţór Már Auđunsson í marki KA gerđi sér hinsvegar lítiđ fyrir og hálfgreip spyrnu Gísla Laxdal. Stubbur hefur veriđ algjörlega stórkostlegur í marki KA í byrjun sumars og hefur ef eitthvađ er bćtt enn í frá sinni mögnuđu frammistöđu í fyrra.

Jakob Snćr Árnason fullkomnađi svo sigur KA á 81. mínútu ţegar hann renndi boltanum í netiđ eftir laglega sókn KA-liđsins og afar sanngjarn og sannfćrandi 0-3 sigur stađreynd.

Ţađ er hrikalega gaman ađ fylgjast međ strákunum í upphafi sumars, liđiđ er ađ spila góđan og agađan leik og hefur til ađ mynda haldiđ hreinu í fimm af sex leikjum sínum til ţessa. Ţá eru strákarnir einnig ákaflega beittir fram á viđ og ljóst ađ ţađ er afar skemmtilegt sumar framundan.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband