Framkvæmdir hafnar á KA-svæðinu!

Almennt

Langþráður dagur rann upp í dag á KA-svæðinu þegar framkvæmdir hófust við endurbætta aðstöðu til knattspyrnuiðkunar. Akureyrarbær sér um og heldur utan um framkvæmdina.

Útskýringu á framkvæmdum má sjá á kortinu hér fyrir ofan.

Á fundi Umhverfis- og mannvirkjaráð í desember 2021 var lagt fram minnisblað varðandi útboð framkvæmda við gervigrasvelli á félagssvæði KA. Í lok janúar voru tilboð opnuð og bárust þá tvö tilboð. Gekk Akureyrarbær til samninga við Finn ehf. Sem hóf svo framkvæmdir í dag eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Fyrsta skrefið í framkvæmdum er jarðvegsvinna þangað sem færa á núverandi gervigras. Það verður einfaldlega dregið yfir og mun nýtast í svipaðri mynd og í dag, en þó verða engin flóðljós sett upp við það.

 

Nýtt gervigras verður svo lagt á svæðið þar sem núverandi gervigras er. Vökvunarkerfi verður komið upp og færanleg stúka sett upp við völlinn. KA mun spila heimaleiki sína þar í sumar í Bestu deild karla um leið og völlurinn er tilbúinn.

 

Umhverfis- og mannvirkjaráð gerði samning við Metatron ehf. um kaup á gervigrasinu, LigaTurf RS Pro II CP 240 18/4. Áætlað er að grasið og stúkan komi til landsins í lok apríl en KA annast leigu á henni alfarið.

KA fagnar framkvæmdinni og ljóst er að framkvæmdin nýtist ekki aðeins KA, heldur öllum þeim liðum sem æfa og keppa á félagssvæði KA. Þau eru fjölmörg en ýmis lið æfa í hverri viku á gervigrasvelli KA.

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband