Gígja og Brynjar íþróttafólk KA árið 2020

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak

Á 93 ára afmælisfögnuði KA var árið gert upp og þeir einstaklingar sem stóðu uppúr verðlaunaðir. Þar ber hæst kjör á íþróttakarli og íþróttakonu KA á árinu. Deildir félagsins tilnefndu karl og konu úr sínum röðum en knattspyrnumaðurinn Brynjar Ingi Bjarnason var valinn íþróttakarl ársins og blakkonan Gígja Guðnadóttir valin íþróttakona ársins.

Brynjar Ingi var valinn besti leikmaður KA í knattspyrnu árið 2020 af leikmönnum, stjórn og stuðningsmönnum. Brynjar Ingi lék stórt hlutverk í Pepsi-deildarliði KA sem endaði tímabilið í 7. sæti og lék hann alla leiki liðsins í deild og bikar. Brynjar Ingi, sem er ósérhlífinn leikmaður, lék í hjarta varnarinnar sem fékk aðeins á sig 21 mark í 18 leikjum. Aðeins tvö lið fengu á sig færri mörk og tapaði KA aðeins þremur leikjum sumarið 2020.

Brynjar Ingi er hreinn og beinn drengur sem að hefur vaxið mikið sem knattspyrnumaður undanfarin ár. Hann hefur alla burði til þess að verða einn besti miðvörður Íslands en Brynjar er aðeins 21 árs gamall. Hann hefur sýnt að þolinmæði og elja eru einkenni sem að ungir knattspyrnumenn þurfa að
hafa til þess að ná langt.

Gígja Guðnadóttir er einn af burðarásum meistaraflokks kvenna í blaki sem á undanförnum árum hefur átt í góðu gengi. Gígja sem er fyrirliði liðsins og einn af máttarstólpum þess var lykilleikmaður þegar liðið tryggði sér Deildarmeistaratitilinn á síðasta tímabili. Þá spilar Gígja einnig mikilvægt hlutverk í A-landsliði Íslands en liðið keppti á Novotel Cup í Lúxemborg í janúar 2020 en þar vann liðið til bronsverðlauna.

Gígja er fyrirmynd allra ungmenna og er ekki bara góður íþróttamaður heldur einnig fyrirmyndar einstaklingur innan sem utan vallar. Hún gefur mikið af sér, stundar heilbrigt líferni og er ábyrg og metnaðarfull í því sem hún tekur sér fyrir hendur.

Hjá körlunum varð Miguel Mateo Castrillo blakmaður annar í kjörinu, handknattleiksmaðurinn Andri Snær Stefánsson þriðji og júdókappinn Adam Brands Þórarinsson fjórði.

Hjá konunum varð handknattleikskonan Ásdís Guðmundsdóttir önnur í kjörinu, knattspyrnukonan Karen María Sigurgeirsdóttir þriðja og júdókonan Berenika Bernat sú fjórða.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband