Flýtilyklar
Grímsi leikjahćstur í efstu deild hjá KA
Hallgrímur Mar Steingrímsson bćtti enn eitt félagsmetiđ hjá KA í 0-1 sigrinum á Val á dögunum en hann er nú leikjahćsti leikmađur KA í efstu deild međ 128 leiki.
Grímsi varđ leikjahćsti leikmađur í sögu KA á síđasta tímabili og heldur áfram ađ bćta viđ ţađ met sitt međ hverjum leik en hann hefur nú leikiđ 277 leiki fyrir KA í deild og bikar.
Ţá er hann einnig markahćsti leikmađur í sögu félagsins međ 85 mörk og ţar af eru 43 mörk í efstu deild sem er einnig félagsmet.
Metiđ sem Grímsi bćtti um helgina átti Erlingur Kristjánsson en hann lék alls 127 leiki fyrir KA í efstu deild á sínum tíma. Erlingur er áfram leikjahćsti leikmađur í sögu handknattleiksdeildar KA en hann lék 577 leiki fyrir KA í handbolta.
Erlingur fyrirliđi meistaraflokks KA hampar Íslandsmeistarabikarnum 1989 á Akureyrarflugvelli
Erlingur var fyrirliđi Íslandsmeistaraliđs KA í knattspyrnu sumariđ 1989 sem og Íslandsmeistaraliđs KA í handbolta áriđ 1997 og er hann sá eini sem hefur veriđ fyrirliđi Íslandsmeistaraliđs í bćđi handbolta og fótbolta.