Gunnlaugur Rafn æfir hjá Bærum SK

Fótbolti
Gunnlaugur Rafn æfir hjá Bærum SK
Spennandi tækifæri hjá Gunnlaugi

Knattspyrnumaðurinn Gunnlaugur Rafn Ingvarsson æfir um þessar mundir hjá norska liðinu Bærum SK. Gunnlaugur sem verður 17 ára á árinu er mikið efni og ljóst að þetta er mikil viðurkenning fyrir hann að fá þetta tækifæri.

Við óskum honum að sjálfsögðu góðs gengis á æfingunum úti og hlökkum til að fá hann reynslunni ríkari til baka fyrir komandi átök í sumar. Þess má geta að Gunnlaugur tryggði KA Bikarmeistaratitil Norður-Austurlands sumarið 2018 í 3. flokki er KA lagði Þór að velli í úrslitaleik.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband