Heimaleikur hjá stelpunum gegn ÍBV

Handbolti

Baráttan heldur áfram hjá stelpunum í KA/Þór á morgun laugardag þegar þær taka á móti ÍBV í stórleik í Olísdeild kvenna kl. 15:00. Við ætlum að grilla fríar pylsur fyrir leik og þá verða stuðningsmannabolir, popp og pizzur til sölu á svæðinu.

Það má búast við hörkuleik eins og alltaf þegar þessi landsbyggðarlið mætast og alveg klárt að ungt lið okkar er klárt í slaginn eftir frábæra frammistöðu gegn toppliði Vals á útivelli á dögunum.

Nú þurfum við á ykkar stuðning að halda kæru Akureyringar, hlökkum til að sjá ykkur og áfram KA/Þór!

Athugið að ef þið komist ekki á leikinn að þá er hann í beinni á KA-TV fyrir aðeins 1.000 krónur á slóðinni livey.events/ka-tv.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband