Horfðu á EM Frakklandi og styrktu KA í leiðinni

Almennt

EM 2016 hefst í Frakklandi 10. júní nk. Mótið er vafalaust stærsti íþróttaviðburður Íslendinga frá upphafi. Góður árangur Íslands er fyrst og fremst ávöxtur knattspyrnuhreyfingarinnar á Íslandi og þeirra fjölmörgu félagsliða sem hafa fóstrað leikmenn landsliðsins.

Leikir Íslands verða í opinni dagskrá en Síminn býður áskrift að öllu mótinu - alls 51 leik - á 6.900 krónur. Gummi Ben lýsir lykilleikjum mótsins hjá Símanum og Þorsteinn J. tekur púlsinn á þjóðinni daglega svo það má búast við toppstemningu.

Þeir sem kaupa áskrift fyrir 31. maí geta látið 500 kr. af áskriftarverðinu renna til KA og eiga kost á því að vinna ferð fyrir tvo á leik Íslands gegn Austurríki.

Farðu inn á https://www.siminn.is/em2016/ og styrktu þitt knattspyrnufélag.

Allir geta tryggt sér áskrift óháð nettengingu eða myndlykli. EM2016 er í boði fyrir alla.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband