Hörkubikarslagur í Mosó í kvöld

Handbolti
Hörkubikarslagur í Mosó í kvöld
Strákarnir ætla sér áfram í bikarnum!

KA hefur leik í Coca-Cola bikar karla í kvöld er liðið sækir Aftureldingu heim klukkan 19:00. Leikurinn er liður í 16-liða úrslitum keppninnar og ljóst að það verður ansi krefjandi fyrir strákana að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar.

Liðin mættust í svakalegum leik í Mosfellsbænum í fyrsta leik vetrarins sem lauk með 28-27 sigri Aftureldingar og ekki spurning að strákarnir vilja hefna fyrir það tap. Lið Aftureldingar hefur þó verið gríðarlega sterkt það sem af er vetri og er í 2. sæti Olís deildarinnar eftir fyrstu 10 umferðirnar og hafa spilað virkilega góðan handbolta.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að drífa sig í Mosfellsbæinn og styðja strákana til sigurs en fyrir þá sem ekki komast á leikinn bendum við á að hann verður í beinni útsendingu á RÚV 2 og um að gera að fylgjast vel með gangi mála, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband