Istogu - KA/Þór í beinni kl. 16:00

Handbolti

KA/Þór mætir Kósóvó meisturunum í KHF Istogu klukkan 16:00 í fyrri leik liðanna í Evrópukeppninni í dag. Mikil eftirvænting er fyrir leiknum enda fyrsta Evrópuverkefni stelpnanna og liðið er staðráðið í að komast áfram í næstu umferð.

Leikur dagsins verður í beinni útsendingu á Makedónsku rásinni RTV+ og er beinn hlekkur á útsendinguna hér:

BEIN ÚTSENDING RTV+

Ef þið hyggist horfa á útsendinguna í síma þarf að ná í app en það er frítt og auðvelt að setja upp, áfram KA/Þór!

Liðin mætast svo öðru sinni á sama tíma á morgun og fer það lið áfram sem hefur betur samanlagt. Leikur morgundagsins verður einnig á RTV+ en einnig á EHF-TV.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband