KA á 5 fulltrúa í ćfingahópum A-landsliđanna

Blak
KA á 5 fulltrúa í ćfingahópum A-landsliđanna
Gígja, Lexi, Jóna, Birkir og Valdís eru í hópunum

Nćstum ţví tvö ár eru liđin frá ţví ađ A-landsliđ karla og kvenna í blaki spiluđu leiki en sú biđ er brátt á enda. Landsliđin taka ţátt í Novotel Cup í Lúxemborg dagana 28.-30. desember nćstkomandi og framundan er undirbúningur fyrir mótiđ.

Í dag voru valdir ćfingahópar hjá báđum liđum og á KA alls fimm fulltrúa í hópunum. Borja Gonzalez Vicente er ađalţjálfari kvennaliđsins og međ honum er Antonio Garcia De Alcara en ţeir völdu ţrjár úr liđi KA sem er međ fullt hús stiga á toppi úrvalsdeildarinnar en ţetta eru ţćr Gígja Guđnadóttir, Jóna Margrét Arnarsdóttir og Valdís Kapitola Ţorvarđardóttir.

Karlamegin voru ţeir Alexander Arnar Ţórisson og Birkir Freyr Elvarsson valdir en Burkhard Disch er ađalţjálfari karlalandsliđsins og međ honum eru ţeir Michel Beautier og Tamas Kaposi. Karlarnir munu ćfa dagana 20.-23. desember en kvennalandsliđiđ dagana 17.-19. desember og verđa hóparnir svo skornir niđur í kjölfariđ.

Óskum okkar glćsilegu fulltrúum til hamingju međ valiđ sem og góđs gengis á komandi ćfingum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband